Hjól viðskiptana þurfa að snúast

Margir pólítikusar tala um að virkja þarf bankakerfi svo viðskiptalífið heldur áfram á snúast. Sem er auðvitað rétt. En hvaða lausnir bjóða þeir?

Vextir Seðlabankans lækka niður í 15%. Er ekki allt í lagi. 15%...Hvaða fyrirtæki geta greitt 15% vexti talandi ekki um ef til þess kemur að ekki verði hægt að greiða á eindaga þá bara okurvextir bætast við og endar í einhverjum 40% vöxtum auk kostnaðar. Hvernig sjá þeir það að viðskiptahjól byrja að snúast með þessari "stórkostlegri aðferð". Það þarf nú ekki nema einn kúrs í rekstrarhagfræði til að sjá að þetta mun ekki skila sér í meiri framleiðslu. Við höfum búið við verðbólgu og háa vexti til að halda verðbólgu niðuri. En kannski er ég nú bara blind en ég sé það ekki alveg að það er að skila árangri. Kannski þarf ég að taka framhaldkúrs í þjóðhagfræði (kannski kemur skýring þar). Þessir háir vextir þjóna bara góðum tilgangi þegar um sparnað er að ræða. En hverjir hafa efni á því að spara núna, jú þeir sem hafa grætt sem mest á uppsveiflutímum (bankamenn). Við almennir borgarar eigum bara rétt til að greiða af okkar háum lánum, hærri útgjöld í matarinnkaupum og atvinnuleysi. Og aftur fer í það að ríkir verða ennþá ríkari.

Bankarnir eru ekki heldur að standa sig eins og skildi heyrist mér. Fólk sem sækir um lán vegna viðskipta fær þau svör að þessi tiltekni business er frekar áhættusamur. En bankarnir er það ekki? Þegar ég heyrði þessa sögu hló ég mig máttlausa. Hver er það sem ákveður hvað er áhættusamt og hvað er ekki? Business sem er ekki talin í flokki áhættu getur farið í gjaldþrot á einni nóttu ef hann er rekin illa, og þau fyrirtæki sem eru talin vera áhættusöm fjárfesting getur blómstrað með góðum stjórnenda um borð. Því má nú ekki setja allan geira undir sama hatt án tillits til hver er um borð. Öll fyrirtæki eru að draga saman seglin, loka eða sameignast (samkeppnismarkaður orðin ennþá minni), verð hækkar og starfsfólki er sagt upp. Hjólin viðskiptana eru SKO ekkert að snúast og munu ekki snúast með þessu áframhaldi.


Nú fór verra

Ansans, nú fór verra að geta ekki keypt mér snekkju. Hvernig stendur á þessu og hvað á ég að gera?

Fyndið því ég mundi ekki flokka þetta sem frétt og fyrirsögnin er nú bara fyndin.


mbl.is Ekki lánað meira til snekkjukaupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöndum verra en austur-evrópa

Verðbólga okkar er hærri en þekkist í hínu austur-evrópu. Takið eftir að ég nefni ekkert um vestur- evrópu sem við viljum gjarnan bera okkur við. Hvernig stendur á þessu?

Pólland var jafnað við jörðu 1945 og þau risu aftur upp. Nota bene þar eru 40 miljónir manna sem þarf að fæða og klæða. Atvinnuleysi þar er um 3% við vel yfir það. Við eigum verulega mikið af auðlindum á meðal pólland ekki eins mikið.

Eigum við að fara bera okkur við austur- evrópu, þeir gerðu þetta eða hitt? Erum við að fara stefna í þá átt?


mbl.is Verðbólga mælist 17,6%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sumir greinilega halda fast í stólinn sinn

Fyrir mig sem óbreyttan borgara með lítla þekkingu á pólitík lítur þetta mál þannig að Davíð er þrjóskur krakki sem vill halda í sitt leikfang (seðlabankastjórastólinn). Auðvitað þarf hann að skoða sinn rétt og þann samning sem hann gerði á sínum tíma til 7 ára. Engu að síður finnst mér að það þarf að láta stundum undan og gera það sem er síðlegt og í þessu tilfelli er það ekki rétt að vera áfram í seðlabankanum með nota bene óbreytta vexti. Það má svo sem ekki dæma strax hvort þeir eru "sekir" um hrun bankana en á meðan á rannsókn stendur ættu seðlabankastjórar að víkja til hlíðar þar til niðurstaða þessa máls er fengin.

Eru þessir ofurvextir ekki að greiða launin þeirra og meira til?


mbl.is Jóhanna og Davíð ræddu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband